Litlaá í Kelduhverfi
Veiðileyfi í Litluá og
Skjálftavatn 2024 eru í vefsölu hér að neðan.
Athugið að sýndar eru lausar stangir þ.e. ef sýnd er talan 3, þá eru 3 stangir lausar.
Vinsamlega sendið okkur póst á litlaa@live.com ef frekari upplýsinga er þörf.
Í Litluá er veitt á fimm stangir í senn. Auk þess er veitt á tvær stangir í Skjálftavatni.
Eingöngu er veitt á flugu samkvæmt veiða-sleppa aðferð.
Veiðitímabil er frá 1. apríl til 10. október.
Veiðimenn skulu gefa sig fram í Keldunesi áður en veiði hefst.
Í lok veiðidags skal skrá veiði dagsins í rafræna veiðibók sem liggur frammi í Keldunesi.
Ekkert veiðihús er við ána en veiðimönnum er bent á gistihúsið í Keldunesi (www.keldunes.is), ferðaþjónustuna í Skúlagarði og bændagistingu í sveitinni.